Kynning á námskeiðinu

Lærðu að lesa nótur á þeim hraða sem hentar þér!

“Mér fannst þetta námskeið bara alveg frábært og var góð upprifjun fyrir mig” – nemandi í námskeiðinu Lærðu að lesa nótur.

Í þessu námskeiði lærir þú allt sem þú þarft til að fara frá því að vita ekkert eða lítið um nótnalestur yfir í það að þekkja öll aðalatriðin sem skipta máli til þess að þú getir lesið nóturnar þínar án nokkurrar aðstoðar. Í námskeiðinu er fjallað um nótnalínur, lykla, nótnanöfnin, hækkunar-, lækkunar- og afturköllunarmerki, laus og föst formerki, nóturnar á hljómborði, söngheitin, lengdargildi, hrynheiti, taktvísa og taktstrik, punkteraðar nótur, bundnar nótur, tónbil, endurtekningar, algeng tónlistarorð og tákn og tóntegundir (dúra og molla). Í lokin er þetta svo allt sett saman og farið yfir það hvernig hægt er að nýta þessa kunnáttu til að lesa lög af nótnablaði. Í lok flestra kennslutímanna er nemandanum boðið upp á að leysa gagnvirk verkefni sem tengjast efninu sem farið var yfir í þeim tíma.

Námskeiðið inniheldur rúmar 2 klukkustundir af myndbandskennsluefni.

“Mér finnst ég nú hafa lært ansi margt eða náð betri skilningi á ýmsum táknum, orðum og auðvitað nótum eftir öll þessi ár í kór” – nemandi í námskeiðinu Lærðu að lesa nótur.

Um kennarann þinn

Dr. Bragi Þór Valsson hefur starfað við og kennt tónlist í áratugi. Hann hóf tónlistarferilinn aðeins 11 ára með Rokklingunum og hefur verið viðloðinn tónlist allar götur síðan, t.d. með Kór Menntaskólans við Hamrahlíð, Lúðrasveit Verkalýðsins, Heimskór æskunnar (World Youth Choir) og sönghópnum Smaladrengjunum. Frá árinu 2004 hefur hann starfað við tónlistarkennslu og kórstjórn á Íslandi og í Suður-Afríku.

Bragi er með mastersgráðu í kórstjórn frá Florida State University (2004) og PhD gráðu í kórstjórn frá Stellenbosch University (2022).

Hann hefur kennt tónlist á öllum skólastigum – í leikskóla, grunnskóla, framhaldsskóla, háskóla og í tónlistarskóla. Hann hefur unnið til verðlauna fyrir tónsmíðar sínar og hljóðfæra- og kórútsetningar hans hafa verið fluttar í rúmlega 30 löndum.

“Mér fannst mjög gott hvað fyrirlestrarnir voru stuttir og hnitmiðaðir” – nemandi í námskeiðinu Lærðu að lesa nótur.

Upplýsingar um námskeiðið

Erfiðleikastig: Byrjendur

Kennari í námskeiðinu

Dr. Bragi Þór Valsson Dr. Bragi Þór Valsson Höfundur

Bragi Þór hefur kennt tónlist í 20 ár víða um heim. Hann er með doktors- og mastersgráður í tónlist og B.Sc. gráðu í tölvunarfræði.

Lærðu að lesa nótur

19.900 kr.
15 vikna aðgangur

Aðgangur að námskeiðinu Lærðu að lesa nótur.