Kanntu ekkert eða lítið á píanó og vilt verða partífær?
“Algjörlega frábært námskeið” – nemandi í námskeiðinu Lærðu að spila popppíanó.
Í þessu námskeiði lærir þú allan grunn til þess að geta spilað 10 vinsæl lög á píanó í popppíanóstíl, sem undirleik fyrir eigin söng eða söng annarra. Við lærum hvernig best er að spila hljóma bassalínur á píanóið eða hljómborðið og svo lærum við hvernig lesið er úr ýmsum hljómatáknum í tónlistarbókum og á vefsíðum með því að fara yfir raunveruleg dæmi og lærum með því tíu þekkt lög en náum í leiðinni nógu góðum skilningi á tækni og hljómakerfum til að geta lært mörg þúsund lög á eigin spýtur þegar námskeiðinu er lokið.
Námskeiðið inniheldur rúmar 95 mínútur af myndbandskennsluefni.
“Útskýringarnar eru nákvæmar og ítarlegar” – nemandi í námskeiðinu Lærðu að spila popppíanó.
Um kennarann þinn
Dr. Bragi Þór Valsson hefur starfað við og kennt tónlist í áratugi. Hann hóf tónlistarferilinn aðeins 11 ára með Rokklingunum og hefur verið viðloðinn tónlist allar götur síðan, t.d. með Kór Menntaskólans við Hamrahlíð, Lúðrasveit Verkalýðsins, Heimskór æskunnar (World Youth Choir) og sönghópnum Smaladrengjunum. Frá árinu 2004 hefur hann starfað við tónlistarkennslu og kórstjórn á Íslandi og í Suður-Afríku.
Bragi er með PhD gráðu í kórstjórn frá Stellenbosch University (2022) og mastersgráðu í kórstjórn frá Florida State University (2004).
Hann hefur kennt tónlist á öllum skólastigum – í leikskóla, grunnskóla, framhaldsskóla, háskóla og í tónlistarskóla. Hann hefur unnið til verðlauna fyrir tónsmíðar sínar og hljóðfæra- og kórútsetningar hans hafa verið fluttar í rúmlega 30 löndum.

